Jæja, þá er
maður kominn heim eftir viku númer 2 í þessari vinnu. Ég verð
bara að segja það að maður hefur sjaldan komist í betri vinnu á
ævinni, þó að þetta sé stundum heilmikið púl, langur vinnudagur
og maður er stundum að lognast útaf klukkan 10 á kvöldin
(venjulega ég næstum aldrei að sofa fyrir miðnætti) þá er þetta
fjölbreytt starf og yfirmaður mjög fínn maður þannig að það er
ekki undan því að kvarta. Allavega skárra heldur en beyglurnar
sem stjórnuðu hótelinu á Laugum þegar ég vann þar, þær gátu ekki
einu sinni ráðið nógu marga starfsmenn til þess sinna hótelinu
og því voru allir í bullandi yfirvinnu. En hey, hver er að hugsa
um það, það var fyrir löngu síðan. En annars var þessi vika
svoldið frábrugðin þeirri síðustu að því leyti að nú var maður
að drepast úr hita frekar en kulda eins og var í síðustu viku og
maður er meira að segja farinn að fá smá lit í andlitið. Svoldið
annað heldur en var í kísiliðjunni þar sem maður kom varla út úr
húsi allt sumarið og var jafn fölur og berklasjúklingur á
lokastigi þegar komið var fram á haustið, svo fölur var
maður.
En að öðru, um
síðustu helgi var Eurovision eins og flestir vita, maður er kannski
svoldið seinn með allt tal um það en þar sem ég kemst ekki á netið
á virkum dögum þá verð ég bara að láta það fjúka núna (betra seint
en aldrei). Þar var Gísli Marteinn nokkur að lýsa, hundfúll yfir
því að við værum ekki með. Þegar stigagjöfin var í gangi óskaði ég
mér þess helst að ég væri kominn í herbergið sem hann var að lýsa
úr svo ég gæti kyrkt manninn með míkrafónssnúrunni því hann var
alveg ótrúlega pirrandi, meira pirrandi en í keppninni sjálfri.
Þegar verið var að tilkynnastigin þá var hann alveg á fullu að
tilkynna:
Einhver gaur í öðru landi:
Israel 4 points
Gísli Marteinn: Ísrael
4 stig
Og að gera þetta í
hvert einasta skipti sem stig var gefið var að gera mig vitlausan.
En nóg um Eurovison og meira um Gísla Martein. Ég heyrði það í
fréttum í vikunni að nokkrir væru farnir að bítast um forystu í
Sjálfstæðisflokknum og var Gísli Marteinn þar á meðal. Nú skulum
við ímynda okkur mjög ógnvekjandi möguleika, Gísli Marteinn myndi
leiða lista sjálfstæðismanna í borgarstjórnarkosningum á næsta ári,
sjálfstæðisflokkurinn vinnur kosningarnar, Gísli Marteinn yrði
borgarstjóri. Ég meina, hversu slæmt yrði það ef þetta gerðist? Það
myndi bara styrkja mann í þeirri skoðun að vilja aldrei nokkurn
tíma eiga lögheimili í Reykjavík. Eitt gott myndi þó af þessu
leiða, Gísli Marteinn myndi ekki lýsa Eurovison á meðan og ekki
vera að stjórna einhverjum leiðinlegum sjónvarpsþáttum. Þannig að
það eru góðir fletir á flestum málum.
Jæja, held ég segi
þetta gott í bili, orðin einhver langloka hjá manni í þetta
skiptið. Held samt að það verði venja hjá manni í sumar að blogga
bara um helgar, verður það ekki fínt, fá bara helgarblogg með
skýrslu um vikuna. Jæja, við sjáum til hvernig það fer. Segi þetta
gott í bili
Yfir og út
P.s. Ef það fór
framhjá einhverjum sem las þessa færslu og þá síðustu þá þoli ég
ekki Gísla Martein.
P.p.s. Ætla rétt
að vona að þetta góða veður sem komið er núna endist eitthvað
annars fer ég í mál við einhvern.
P.p.p.s. Af hverju
er þessi helv… visir.is borði kominn hérna efst á síðuna. Ætla rétt
að vona að helv… 365 hálfvitarnir séu ekki búnir að kaupa
blog.central. Já, þetta eru hálfvitar, bera ábyrgð á því að DV
kemur reglulega út með sína lygaþvælu og mannorðsmorð.